
Eminem og 50 Cent hafa nýlega tilkynnt um tónleika ferð þeirra um Evrópu, "Anger Management Tour 3 Europe", sem mun hefjast með tónleikum í Hamborg þann 1. september. Daginn eftir, eða þann 2. september koma þeir félagar svo til Kaupmannahafnar, þazr sem þeir munu halda frábæra tónleika í tónleikahöllinni Parken, sem getur tekið á móti ca. 50.000 gestum.
Með þeim í tónleikaferðinni eru m.a. D-12, Obie Trice, Stat Quo, Lloyd Banks, Young Buck, Olivia og Flipside, en þessi samsetning getur kannski best verið lýst sem himmnaríki Hip Hop.
Allir tónleikar "A nger Management" tónleikaferðalagsins hafa verið uppseldir í Ameríku, og stefnan er nú tekin til Evrópu. Eminem hélt tónleika í Evrópu fyrir 2 árum síðan, en á því tónleikaferðalagi kom hann ekki til Danmerkur. Þetta er því í allrafyrsta sinn sem Eminem heldur tónleika í Danmörku og hefur þeirra verið lengi beðið af áðdáendum hans í Danmörku og einnig á Íslandi.
Við hjá ICE Travel ApS í samvinnu við Ferðaskrifstofuna ICE á Íslandi, bjóðum pakkaferð á þessa frábæru tónleika með öllu tilheyrandi. Pakkinn inniheldur eftirfarandi:
2/9 - Flug með Iceland Express sem fer frá Keflavík kl. 07:30 og lendir í Kastrup kl. 12:40 að staðartíma. Í móttökusal bíður ykkar fulltrúi frá okkur sem fylgir ykkur í rútu, sem ekur hópnum síðan til Hotel Copenhagen á Amager, rétt við miðborgina. Þar er tjekkað inn og eftirmiddagurinn er svo á eigin vegum. KL. 17:00 kemur rútan aftur að hótelinu og ekur hópnum í Parken, en þó geta þeir sem vilja komið sér þangað sjálfir eftir rölt í bænum. Eftir tónleikana er hver á eigin vegum.
3/9 - Dagurinn er á eigin vegum í Kaupmannahöfn.
4/9 - Dagurinn er á eigin vegum, en kl. 12:00 þarf að skila herbergjum, en farangur getur fengið að vera í lobby. Rútan kemur svo kl. 18:30 og ekur hópnum út á Kastrup flugvöll fyrir brottför Iceland Express kl. 21:25 sem lendir í Keflavík kl. 22:45 að staðartíma.
Verð er kr. 49.500 pr. fullorðinn og 35.000 pr. barn til og með 12 ára og í fylgd með fullorðnum. Verðið innifelur:
- Flug Keflavík-Kastrup-Keflavík með flugvallarsköttum
- Akstur frá flugvelli að hóteli, á tónleika og á flugvöll aftur í ferðalok.
- Aðgöngumiði á tónleikana á besta stað á gólfinu næst sviðinu.
- 2 nætur í deildu tveggja manna herbergi með morgunmat.
|